Stefnuskráin

Fulla ferð!

Við segjum ekki bara eitthvað heldur höfum skýra stefnu. Við lofum eingöngu því sem við ætlum að standa við og munum halda kosninga­loforðunum sýnilegum allt kjör­tíma­bilið svo þú getir fylgst með og haldið okkur við efnið. Sjáðu stöðuna á því sem við lofuðum síðast.

Sækjum fram á sterkum grunni

Lægri

skattar

Lækkum fasteigna­gjöld strax næstu áramót

Við ætlum að lækka fasteignagjöld á íbúðarhúsnæði strax um áramótin. Góður rekstur sveitarfélagsins á að skila sér til íbúanna.

Lægri fasteigna­gjöld á atvinnu­hús­næði

Við ætlum að lækka fasteignagjöld á atvinnuhúsnæði í Fjarðabyggð til að auka samkeppnishæfni og laða að ný verkefni til sveitarfélagsins. Lækkunin tekur gildi strax um áramótin.

Betri rekstur

Áfram­haldandi lækkun skulda

Skuldir sveitarfélagsins eru enn of háar og vaxtagreiðslur of hátt hlutfall at útgjöldum. Við ætlum að halda áfram að greiða niður skuldir svo fjármunirnir nýtist innan sveitarfélagsins.

Út með óþarfa

Að fara með fjármuni bæjarbúa er ekki verkefni sem við tökum af léttúð. Við höldum áfram að taka til í rekstrinum, forgangsröðum verkefnum og sýnum ábyrgð. Það er ekki átak heldur stöðugt verkefni sem má aldrei hætta að sinna.

Opið bók­hald á þessu ári

Við hófum vinnu við að opna bókhald Fjarðabyggðar því við trúum á algjört gagnsæi í meðferð fjármuna bæjarbúa. Við ætlum að ljúka þeirri vinnu strax á þessu ári svo allir geti séð í hvað peningarnir fara. Þannig geta allir veitt aðhald.

Hag­kvæmari inn­kaup

Við munum samræma innkaup sveitarfélagsins, herða eftirlit með innkaupum og tryggja skýra ábyrgð til að ná betri kjörum, auknu gagnsæi og markvissari nýtingu skattfjár.

Aukin eftir­fylgni fram­kvæmda

Við herðum eftirfylgni með framkvæmdum með skýrum samningum, reglulegu eftirliti og ábyrgðarskiptingu, til að tryggja að verkefni haldist innan tíma- og kostnaðaráætlana.

Álagi mætt með að­­keyptri þjónustu

Við ætlum að veita stöðuga þjónustu sem íbúar geta treyst á. Tímabundnu álagi og biðlistum verður eytt með aðkeyptri þjónustu þegar þess gerist þörf. Með sveigjanlegri stjórnsýslu nýtast peningar sveitarfélagsins mun betur, íbúar geta treyst á þjónustuna og vinnuálag starfsmanna er fyrirsjáanlegra og stöðugra.

Við skilum bættum rekstri til íbúanna

Með bættum rekstri sveitarfélagsins getum við aukið fjárfestingar og svigrúm fyrir nauðsynlegt viðhald fasteigna og útisvæða og tryggt lægri álögur á íbúa strax og til framtíðar. Traustur rekstur sveitarfélagsins er grunnforsenda þess að geta sótt fram á öllum sviðum.

Atvinna

Þre­földun Mjó­eyrar­hafnar

Við hröðum uppbyggingu Mjóeyrarhafnar og þreföldum hana í samræmi við langtímaáætlun til ársins 2040 um þróun lóða og hafnaraðstöðu til að anna vaxandi eftirspurn atvinnulífsins.

Fjöl­breyttari atvinnu­tæki­færi

Við ætlum að laða að fjárfesta og ný fjölbreytt verkefni, s.s. olíuleit, orkugarð, fiskeldis-, ferða- og hafnsækna þjónustu með fjölgun atvinnulóða, lægri álögum og uppbyggingu innviða.

Sæ­bjúgna­vinnslu á Stöðvar­fjörð

Við ætlum að sjá til þess að hagstæð skilyrði skapist fyrir uppbyggingu sæbjúgnavinnslu á Stöðvarfirði með breyttu fyrirkomulagi veiðisvæða.

Eldis­leyfi í Mjóa­firði

Við munum fylgja eftir skýrri kröfu okkar um að útboð eldisleyfa í Mjóafirði fari fram á þessu ári.

Aukin markaðs­setning á sveitar­félaginu

Við ætlum að auka markaðssetningu á sveitarfélaginu til að ná í nýja íbúa og laða að ný atvinnutækifæri og fjárfesta.

Efling ferða­þjónustunnar

Við ætlum í aukið samstarf við ferðaþjónustuaðila til að laða að fleiri ferðamenn. Lögð verður sérstök áhersla á fjölgun og móttöku skemmtiferðaskipa, m.a. með uppbyggingu hafnaraðstöðu og samstilltu markaðsátaki. Einnig verður lögð aukin áhersla á markaðssetningu skíðasvæðisins í Oddsskarði.

Aukin raf­væðing hafnanna

Það er lykilatriði að mæta þörfum atvinnulífsins. Nútímavæðing hafnanna er samkeppnismál. Við ætlum að tryggja aukna rafvæðingu í höfnunum til að veita atvinnulífinu kost á því að tengjast í land. Með því verða Fjarðabyggðahafnir ákjósanlegur, hagkvæmur og umhverfisvænn kostur.

Gamli barna­skólinn verður að þekkingar­kjarna

Opnum Rannsóknarmiðstöð HÍ á menntavísindasviði í gamla barnaskólanum á Eskifirði 2027.

Öflugri rödd

Gætum hags­muna íbúa og atvinnu­lífs í hví­vetna

Við munum sinna hagsmunabaráttu sveitarfélagsins og berjast fyrir hagstæðum skilyrðum atvinnuuppbyggingar meðal annars á sviði raforku-, sjávarútvegs-, fiskeldis- og nýsköpunarmála.

Berjumst áfram fyrir mið­stöð olíu­leitar í Fjarða­byggð

Við höfum einn flokka barist fyrir komu fjárfesta og uppbyggingaraðila til Fjarðabyggðar svo miðstöð olíuleitar verði staðsett í Fjarðabyggð. Við munum fylgja þessu eftir.

Endur­skoða aðild okkar að SSA

Við munum endurskoða veru Fjarðabyggðar í SSA með hagsmuni íbúa og atvinnulífs að leiðarljósi. Við munum beita okkur af festu fyrir okkar hagsmunum, ef vera okkar innan SSA skaðar þá hagsmuni þá er okkur betur borgið utan þess.

Krefjumst hjúkrunar­rýma í Neskaup­stað

Við munum áfram berjast af fullum krafti fyrir því að hjúkrunarrými verði staðsett í Neskaupstað. Allt annað er óboðlegt. Hreppaflutningar verða ekki með okkar samþykki.

Umdæmis­sjúkra­húsið í Neskaup­stað

Við munum standa vörð um sjúkrahúsið í Neskaupstað og vinna með starfsfólki þess og stjórnvöldum að framþróun þess og eflingu.

Höldum Loftbrúnni

Við höfum barist gegn hugmyndum ríkisstjórnarinnar um að skerða Loftbrúna sem er okkur í Fjarðabyggð mikilvæg. Við munum halda áfram að berjast kröftuglega gegn þessu.

Nei við ESB

Við höfum skýra stefnu í Evrópumálum og erum ófeimin við að viðra hana. Hagsmunum Fjarðabyggðar er best borgið utan Evrópusambandsins og við munum berjast gegn aðild að því.

Hér er gott að vera

Menning

og mannlíf

Endur­bygging Stríðs­ára­safnsins

Nýtt og endurbætt Stríðsárasafn verður opnað með nýjum sýningar- og samkomusal. Safnið verður fullklárað árið 2028.

Tenging safna Fjarðabyggðar

Við ætlum að samtengja söfn Fjarðabyggðar sem eykur gæði þjónustu, styrkir markaðssetningu og gerir menningararf sveitarfélagsins sýnilegri og aðgengilegri.

Aukin opnun og al­þjóð­legt sam­starf Franska safnsins

Við munum auka opnunartíma Franska safnsins á Fáskrúðsfirði í samvinnu við vinabæinn Graveline í Frakklandi og franska sendiráðið með það að markmiði að efla sýnileika safnsins.

Sagna­slóð Fjarða­byggðar

Við ætlum að gera Fjarðabyggð að lifandi sagnaslóð með uppbyggingu á sagnastöðum, merkingum og stafrænum lausnum sem gera sögu svæðisins aðgengilega fyrir íbúa og gesti.

Við­burðir allt árið

Við munum styðja betur við viðburðahald í öllum byggðakjörnum og leggja áherslu á að dreifa menningarstarfi jafnt yfir árið til að efla mannlíf og auka aðdráttarafl svæðisins. Við ætlum að veita tíðari úthlutun menningar- og viðburðastyrkja. Þannig gerum við Menningarstofu að öflugri stoð fyrir viðburða- og ferðaþjónustuaðila.

Betri nýting menningar­húsa og -rýma

Við ætlum að nýta betur húsnæði sveitarfélagsins fyrir menningarstarf, viðburði og samfélagsverkefni með auknu samstarfi við félagasamtök og frumkvöðla.

Stoltari

Fjarðabyggð

Átakið „Stolt af Fjarða­byggð“

Við ætlum að hrinda af stað átaki sem eflir stolt, samstöðu og jákvæða ímynd Fjarðabyggðar. Við ætlum að virkja íbúa til þátttöku, efla samstarf og styrkja samfélagsandann. Verslum í heimabyggð, stöndum saman og treystum böndin.

Eflum íbúa­sam­tökin

Við munum fela íbúasamtökunum stærra hlutverk við forgangsröðun verkefna í nærumhverfinu. Samtökin verða í reglubundnu samtali við bæjarráð og vinna með bæjarfélaginu að framfaramálum. Með því að gefa íbúum raunverulegt hlutverk í verkefnum og ákvarðanatöku styrkjum við samfélagskennd og ábyrgð.

Fjarða­byggð sem mið­stöð verð­mæta­sköpunar

Við munum efla markaðssetningu á Fjarðabyggð sem öflugri miðstöð verðmætasköpunar. Við ætlum að kynna styrkleika sveitarfélagsins markvisst fyrir landsmönnum, stjórnvöldum, atvinnulífi og fjárfestum til að auka sýnileika og laða að ný tækifæri.

Efna­hags­mæla­borð Fjarða­byggðar

Við erum stolt af því að vera eitt öflugasta sveitarfélag landsins í verðmætasköpun. Við munum setja upp opið mælaborð sem sýnir skattspor, atvinnutekjur og efnahagsumsvif Fjarðabyggðar og helstu atvinnugreina. Mælaborðið verður tilbúið strax á þessu ári og gerir framlag samfélagsins sýnilegt.

Fjarða­byggð skartar sínu fegursta

Við ætlum í fegrunarátak í öllum byggðarkjörnum í samstarfi við íbúasamtök sem fá aukið hlutverk og fjármagn til að forgangsraða verkefnum. Markmiðið er snyrtilegt, lifandi og aðlaðandi umhverfi.

Íbúar forgangs­raða

Í gegnum nýtt íbúaapp fá íbúar aukna aðkomu að verkefnum sveitarfélagsins og geta tekið þátt í forgangsröðun og mótun nærumhverfis síns. Ábendingakerfið verður innleitt í íbúaappið og íbúar geta valið að gera ábendingar sínar sýnilegar fyrir öllum á bæjarkorti þar sem aðrir geta veitt málinu stuðning og þannig forgangsraðað góðum hugmyndum.

Kenni­leiti við inn­keyrslur

Við ætlum að setja upp skýr og eftirminnileg kennileiti við innkeyrslur í byggðarkjarna sem styrkja ímynd Fjarðabyggðar og skapa sterka fyrstu upplifun fyrir gesti og íbúa.

Eflum verslun og þjónustu í heima­byggð

Við munum styðja við og kynna verslun og þjónustu í sveitarfélaginu með kynningarstarfi sem hvetur íbúa og gesti til að nýta það sem í boði er í heimabyggð.

Náttúra

og útivist

Falleg Fjarða­byggð

Við ætlum að fegra byggðarkjarnana, virkja kraftinn og fá samfélögin til að forgangsraða verkefnum í nærumhverfi sínu. Íbúasamtök fá stærra hlutverk í umhverfis- og útivistarmálum byggðarkjarnanna.

Hlúum að Norð­fjarðará

Við ætlum í framkvæmdir í Norðfjarðará í samvinnu við landeigendur og veiðifélag til að tryggja bætt skilyrði fyrir bleikjustofninn í einni bestu veiðiá landsins.

Aukið að­gengi að náttúru­perlum og úti­vistar­svæðum

Við ætlum að gera perlunum okkar hærra undir höfði og auka aðgengi að þeim með markvissri uppbyggingu göngu- og hjólastíga, bekkja og skilta sem segja sögu staðanna og náttúrunnar. Íbúasamtök fá stærra hlutverk við forgangsröðun verkefnanna.

Sorp­brennsla utan svæðisins

Við munum í samstarfi við önnur sveitarfélög koma á sorpbrennslustöð, utan Austurlands, sem nýtir úrgang til orkuframleiðslu, eykur sjálfbærni og lækkar úrgangskostnað til framtíðar.

Samfélag til framtíðar

Íþróttir og

æskulýðsmál

Nýtt íþrótta­hús á Eski­firði 2027

Eftir stopp í málinu settum við það í gang aftur þegar við komumst í meirihluta. Við létum klára frumhönnun hússins, staðsetningin er klár og framkvæmdir hefjast strax í sumar.

Starfs­maður íþrótta­félaganna

Að manna sjálfboðaliðastarf verður sífellt meiri áskorun. Því ætlum við að fjármagna stöðu starfsmanns íþróttafélaganna sem aðstoðar m.a. við daglegt starf, fjármögnun, mannaráðningar, mótahald, skipulagningu keppnisferða og tryggir betra samstarf þeirra á milli og við sveitarfélagið. Starfsmaðurinn verður á forræði íþróttafélaganna.

Ferða­sjóður iðkenda íþrótta og tóm­stunda

Við ætlum að koma á ferðasjóði í samráði við atvinnulífið í Fjarðabyggð. Ferðakostnaður getur verið mjög íþyngjandi fyrir fjölskyldur og við ætlum að koma til móts við það. Úthlutanir skila sér beint til iðkendanna.

Gjör­breytt æsku­lýðs­starf fyrir ung­menni

Ungmenni hafa kallað eftir auknu samstarfi félagsmiðstöðvanna. Við ætlum að stórefla æskulýðsstarf með meiri samgangi og fjölbreyttara starfi þvert á byggðakjarna.

Sjálf­stæð stjórn yfir skíða­svæðinu í Odds­skarði

Brýnt er að rekstur og uppbygging skíðasvæðisins í Oddsskarði verði efld til muna og að stofnað verði félag utan um reksturinn með stjórn skipaðri af hagaðilum skíðasvæðisins. Félagið verður sjálfstætt og heldur utan um allar ákvarðanatökur og rekstur svæðisins sem tryggir betri nýtingu fjármuna, aukna markaðssetningu og betri þjónustu. Rekstur og uppbygging svæðisins verður fjármagnað af sveitarfélaginu og atvinnulífinu.

Betri Fjarða­byggðar­höll

Lokið verður við að bæta lýsingu, einangra og hita höllina á þessu ári. Þannig tryggjum við fjölbreyttari notkun fyrir alla aldurshópa allt árið.

Skólamál

Ný mennta­stefna

Við setjum nýja menntastefnu í samráði við foreldra, nemendur og starfsfólk þar sem áhersla verður lögð á persónumiðað nám sem tengir saman skóla, íþróttir, tómstundir og listir. Jafnframt leggjum við áherslu á sterkan grunn í læsi og stærðfræði á fyrstu skólaárunum til að efla námsárangur til lengri tíma.

Nútíma­væðing skóla­starfs

Við ætlum að nýta tæknilausnir í auknum mæli í skólastarfi og veita kennurum stuðning til að nýta sér nýjustu tækni.

Eflum sam­starf á milli skóla­eininga í Fjarða­byggð

Við ætlum að nýta þekkinguna innan skólakerfisins í sveitarfélaginu. Samstarf skóla skapar aukinn sveigjanleika og eykur gæði kennslunnar.

Leik­skóla­vist áfram tryggð við 12 mánaða aldur

Vinna og fjölskyldulíf á að fara saman. Við ætlum að tryggja áfram að 12 mánaða börn komist á leikskóla í Fjarðabyggð.

Engir óvæntir lokunar­dagar

Með fyrirsjáanleika í vistun getum við tryggt samfellu í leikskólastarfinu og haldið áfram að fækka lokunardögum. Við hættum ekki fyrr en við náum markmiðinu um enga óvænta lokunardaga!

Endur­bætur á hús­næði Breið­dals- og Stöðvar­fjarðar­skóla

Farið verður í að laga þak grunnskólans á Breiðdalsvík í sumar. Í kjölfarið verður farið í auknar endurbætur á húsnæði Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla.

Endur­menntun kennara

Við ætlum að veita kennurum aukið svigrúm til að nýta sér tækni við þróun nútímalegs námsefnis.

Stuðningur við ófag­lært leik­skóla­starfs­fólk til náms

Við ætlum að veita ófaglærðu leikskólastarfsfólki aukinn stuðning til náms í faginu.

Aukið starfs­nám

Við ætlum að efla samstarf við Verkmenntaskóla Austurlands og atvinnulífið. Auka þarf starfskynningar og starfsnám með áherslu á iðn- og tæknimenntun.

Geðheilbrigðismál

Öflugra forvarnar­starf fyrir ung­menni

Við ætlum að efla forvarnir með fræðslustarfi í skólunum. Áherslan verður á áfengis-, vímuefna- og geðheilbrigðismál.

Efla sam­starfið við Píeta-samtökin

Við ætlum að efla og þróa áfram samstarf við Píeta samtökin sem gegna lykilhlutverki í geðheilbrigðismálum. Fjarðabyggð var fyrsta sveitarfélagið til að gera samning um fasta viðveru samtakanna og við munum byggja á þeim grunni með auknum stuðningi við forvarnarstarf og sálgæslu. Með þessu tryggjum við áfram aðgengi íbúa að mikilvægri þjónustu og styrkjum viðbrögð við áskorunum í geðheilbrigðismálum.

Eldri íbúar

Fjölgum hjúkrunar­rýmum

Við höfum tryggt tvöföldun Hulduhlíðar. Við sættum okkur ekki við annað en að hjúkrunarrými verði í Neskaupstað og að endurbótum á Uppsölum ljúki á kjörtímabilinu.

Við ætlum að fjölga þjónustu­rýmum fyrir aldraða

Við ætlum að fjölga fjölbreyttum búsetuúrræðum í Fjarðabyggð. Breiðablik verður áfram þjónusturými fyrir aldraða.

Hús­næði fyrir 60 ára og eldri

Við ætlum að sjá til þess að byggðar séu íbúðir fyrir 60 ára og eldri í Fjarðabyggð.

Dag­dvöl fyrir eldri borgara

Við ætlum að fjölga dagdvalarúrræðum fyrir eldri borgara í Fjarðabyggð til að efla þjónustu, auka sjálfstæði og bæta lífsgæði. Með fjölbreyttari dagdvöl, sem felur í sér umönnun, félagsstarf og stuðning í daglegu lífi, viljum við brúa bilið milli heimabúsetu og hjúkrunar og tryggja að fleiri geti búið lengur heima við öryggi og reisn.

Notenda­miðuð aksturs­þjónusta fyrir eldri borgara

Við munum setja á notendamiðaða akstursþjónustu fyrir eldri borgara samhliða uppbyggingu búsetuúrræða, til að tryggja betra aðgengi, aukið sjálfstæði og meiri lífsgæði.

Eflum Janusar­verkefnið

Við munum þróa Janusarverkefnið áfram í samvinnu við eldri borgara og íþróttahreyfinguna til að tryggja sjálfbærni verkefnisins og aukna framþróun.

Stærri félags­aðstaða eldri borgara í Nes­kaup­stað

Við munum mæta þörfinni fyrir nýja og endurbætta félagsaðstöðu fyrir eldri borgara í Neskaupstað í fullu samráði við félagið þar.

Fjarðabyggð 2.0

Húsnæðis- og
skipulagsmál

Tryggt hús­næði fyrir eldri íbúa

Við ætlum að mæta fjölbreyttri húsnæðisþörf með því að tryggja að nægar lóðir af hentugri stærð og staðsetningu séu til staðar í öllum byggðakjörnum á grunni húsnæðiskönnunar 60 ára og eldri.

Fjölgun leigu­hús­næðis

Liður í fjölgun nýrra íbúa er að mæta augljósri eftirspurn eftir leiguhúsnæði. Við ætlum í verkefni með byggingaraðilum og atvinnulífinu til að fjölga leiguhúsnæði.

Burt með grunnana á Fá­skrúðs­firði

Við ætlum að leysa til okkar húsgrunnana við Skólaveg í samvinnu við byggingaraðila með skilyrðingu um uppbyggingu.

Nýtt miðbæjar­torg í Nes­kaup­stað

Við ætlum að hefja framkvæmdir strax í sumar við nýtt og glæsilegt miðbæjartorg við Egilsbúð í Neskaupstað.

Nýr mið­bær á Eski­firði

Nýr miðbær er löngu tímabær á Eskifirði og samhliða framkvæmdum í Grjótá munum við ljúka við skipulag hans.

Nýr miðbæjar­kjarni á Reyðar­firði

Við ætlum að ljúka við lóðaskipulag miðbæjar á Reyðarfirði svo byggingaraðili geti hafið fyrirhugaða uppbyggingu við miðbæjarkjarna.

Útivistar­paradís í Neskaup­stað

Við ætlum að klára nýtt útivistarsvæði sem tengir saman fjölskyldugarð, tjaldstæði, strandblaksvöll og hjólabrautir í skemmtilegt umhverfi ofan við Neskaupstað.

Upp­bygging við Bleiksár­foss

Við ætlum að klára uppbyggingu áningarstaðarins við Bleiksárfoss með gönguleiðum og lýsingu við fossaröðina. Þaðan verður tenging með göngustígum ofan við bæinn á vegum skógræktarinnar.

Upp­bygging útivistar­svæðisins við Búðarár­foss

Við ætlum að ljúka við uppbyggingu gönguleiðar meðfram Búðarárgili og upp að Búðarárfossi ásamt því að búa til útsýnispall við Búðarárfoss.

Betra að

byggja

Skjót afgreiðsla erinda

Afgreiðslutími byggingarmála í Fjarðabyggð er of langur. Við styttum afgreiðslutíma sveitarfélagsins í tvær vikur og einföldum ferlið með betri og aðgengilegri upplýsingum. Við ætlum ekki að tefja eða standa í vegi fyrir uppbyggingu í Fjarðabyggð.

Nemum nýtt land til hús­næðis­upp­byggingar

Við nemum nýtt land þar sem þess er þörf og sjáum til þess að nægt lóðaframboð verði í öllum byggðakjörnum sveitarfélagsins.

Áfram­haldandi afsláttur af gatna­gerðar­gjöldum

Við ætlum að halda áfram með afslátt af gatnagerðargjöldum á íbúðarhúsnæði.

Innviðir

og tækni

Göturnar í lag

Við ætlum að tvöfalda fjármagn í viðhald gatna.

Stafræn Fjarða­byggð

Við ætlum að halda áfram að byggja upp stafræna Fjarðabyggð á vefnum og í appinu svo íbúar hafi fljótlega og þægilega leið til að nálgast upplýsingar, s.s. æfingatöflur íþróttafélaganna og skrá ábendingar. Við ætlum að setja Fjarðabyggðarkortið í símann.

Notenda­stýrð sorp­þjónusta

Sorphirða mun taka meira mið af þörfum íbúa með aukinni pöntunarþjónustu.

Samgöngur

Suður­fjarða­göng

Suðurfjarðagöng eru hagkvæm framkvæmd sem mun auka umferðaröryggi, stytta vegalengdir, sameina Fjarðabyggð og stækka atvinnusvæðið. Við ætlum að berjast áfram fyrir Suðurfjarðagöngum og að fyrsta áfanga Suðurfjarðavegar verði lokið sem fyrst.

Við styðjum Fjarða­göng

Við munum berjast áfram fyrir Fjarðagöngum og leggja áherslu á að tenging Mjóafjarðar verði við Fagradal.

Styrking Norð­fjarðar­flug­vallar

Við ætlum að tryggja betri vetrarþjónustu á flugvellinum og halda áfram uppbyggingu vallarins með auknum aðflugsbúnaði.

Ertu í alvöru enn óviss?

Sjáðu allt sem við höfum staðið við á kjörtímabilinu.