Að morgni 11. September þurfti að hreinsa grjót af Hringveginum í Kambaskriðum milli Stöðvarfjarðar og Breiðdalsvíkur. Tveir til þrír steinanna voru á stærð við þvottavélar og fleiri á stærð við örbylgjuofna. Þetta er ekki afskekktur fjallvegur sem fáir eiga erindi um. Þetta er Hringvegurinn. Og þetta er sami vegur og börn í Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla fara um í skólaakstri daglega.
Fyrr í vikunni var í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 tillaga um að hækka kílómetragjald á ökutæki um 15,9%. Röksemdin er meðal annars sú að þeir sem aki mest taki meiri þátt í kostnaði við vegakerfið.
Það er sjónarmið sem hægt er að ræða.
En þá verðum við líka að ræða hina hliðina á peningnum
Fyrir hvaða vegakerfi erum við íbúar að greiða fyrir?
Hér fyrir austan og sérstaklega á suðurfjörðunum er akstur ekki val. Við keyrum lengri vegalengdir til vinnu, skóla, læknisþjónustu, íþróttaiðkunar og til að sækja aðra grunnþjónustu.
Einnig treystur atvinnulífið á vegina til að koma hráefnum að fyrirtækjum og fullunnum útflutningsafurðum til hafna.
Á Austurlandi verða til gríðarleg útflutningsverðmæti. Fiskur, ál og aðrar vörur fara eftir þessu vegi á leið sinni á markað. Samt eru kaflar á Hringveginum þar sem vegfarendur aka enn yfir einbreiðar brýr, um svæði þar sem grjóthrun og skriður eru þekkt vandamál og um vegi sem hafa beðið endurbóta árum og áratugum saman.
Á kaflanum milli Reyðarfjarðar og Breiðdalsvíkur hafa meðal annars verið fjórar einbreiðar brýr og Alþingi hefur áður fjallað um að langir kaflar leiðarinnar uppfylli ekki þær öryggiskröfur sem gera þarf til Hringvegarins.
Í dag fengum við enn eina áminninguna um hvers vegna þetta skiptir máli.
Þetta snýst líka um börnin okkar
Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli starfar á tveimur stöðum og skólaakstur milli byggðarlaganna er hluti af daglegu lífi barna og fjölskyldna. Skólinn hefur sérstök viðmið um hvenær ekki skuli leggja af stað vegna veðurs og færðar, enda geta aðstæður á þessari leið orðið erfiðar.
Foreldrar eiga ekki að þurfa að velta því fyrir sér hvort grjót á stærð við heimilistæki hafi fallið á Hringveginn áður en barnið þeirra fer í skólabílinn.
Þetta er ekki sagt til að skapa ótta. Þetta er einfaldlega staðreynd sem við þurfum að horfast í augu við.
Við getum ekki stjórnað rigningunni og við getum ekki stöðvað náttúruöflin. En við getum ákveðið hvernig við byggjum vegakerfið okkar og hvaða áhættu við teljum ásættanlega á einni mikilvægustu samgönguæð Austurlands.
Gjöld og þjónusta verða að haldast í hendur
Ég er ekki að halda því fram að við eigum ekki að greiða fyrir vegakerfið okkar. Gott og öruggt vegakerfi kostar peninga.
En þegar ríkið ætlar að rukka vegfarendur eftir hverjum eknum kílómetra verður það líka að viðurkenna að aðstæður fólks eru ólíkar.
Sá sem þarf að aka tugi kílómetra á dag til að sækja vinnu eða þjónustu á landsbyggðinni getur ekki einfaldlega ákveðið að stytta ferðina sína. Flutningabíllinn sem flytur útflutningsafurðir frá Austurlandi getur ekki heldur sleppt því að aka þær hundruð kílómetra sem þarf til að koma verðmætunum á áfangastað.
Þess vegna finnst mér eðlilegt að við gerum kröfu um eitt á móti:
Ef við eigum að greiða meira fyrir hvern ekinn kílómetra, þá eigum við líka að sjá þá fjármuni skila sér í öruggara og betra vegakerfi.
Það þarf ekki að vera flóknara.
Tími til að sjá aðstæður með eigin augum
Ég hef áður talað fyrir því að Suðurfjarðarvegur verði tekinn föstum tökum. Fyrsti áfangi er skref í rétta átt, en hann leysir ekki vandann í heild.
Næsta skref að mínu mati er að umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis komi austur og fari leiðina sjálf.
Ekki til að hlusta á enn eina ræðuna.
Heldur til að sjá Kambaskriður. Sjá einbreiðu brýrnar. Sjá jarðsigið. Sjá þá staði þar sem vatn, grjót og veður ganga á veginn. Tala við fólkið sem keyrir þessa leið á hverjum degi – þar á meðal þá sem bera ábyrgð á að koma börnunum okkar örugglega í skólann og heim aftur.
Þegar ákvarðanir um milljarða í samgöngum eru teknar finnst mér ekki ósanngjarnt að ætlast til þess að þeir sem taka þær hafi séð aðstæður með eigin augum.
Við þurfum ekki að tala niður Austurland til að færa rök fyrir þessu. Þvert á móti.
Hér eru öflug samfélög. Hér er blómlegt atvinnulíf. Hér verða til mikil verðmæti fyrir íslenskt þjóðarbú og hér er fólk sem vill halda áfram að byggja upp.
En þeirri uppbyggingu verða að fylgja innviðir.
Við getum ekki ætlast til þess að fólk og fyrirtæki greiði sífellt meira fyrir að nota vegakerfið á meðan mikilvægir hlutar þess bíða áratugum saman eftir nauðsynlegri uppbyggingu.
Við erum tilbúin að leggja okkar af mörkum. Þá er eðlilegt að ríkið geri það líka.
Höfundur er varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð
