10. október

Sísýfos í sveitarstjórn

Raggi

1. miejsce

Sveitarstjórnarfólk býður sig fram til að byggja upp samfélög en eyðir sífellt meiri tíma í að verja það sem fyrir er. Þetta minnir á Sísýfos úr grískri goðafræði sem ýtti steini upp fjall, aðeins til að sjá hann velta aftur niður.

Líkt og Sísýfos höldum við áfram að ýta í stað þess að leggjast í væl. En gaman væri að koma steininum á leiðarenda. Helst áður en boðað verður til enn eins fundar um stöðu hans í brekkunni.

Uppsagnarbréfin tilbúin en hitt kemur síðar

Starfsfólk heilbrigðiseftirlitanna hefur fengið uppsagnarbréf en veit lítið um hvað tekur við. Fólk með mikilvæga þekkingu og reynslu bíður í óvissu um framtíð sína.

Sveitarfélögin eiga að undirbúa þjónustuna sem þau þurfa að veita þegar heilbrigðiseftirlitin verða lögð niður um áramótin. Regluverkið er ekki tilbúið og því skortir forsendur til að skipuleggja framkvæmdina.

Uppsagnarbréfin eru komin. Útfærslan má greinilega bíða. Það stefnir í þjónusturof og stjórnvöld bera ábyrgð á að afstýra því.

Undirtektir leggja ekki malbik

Viðhaldspottur Vegagerðarinnar fyrir malbiksframkvæmdir í og við þéttbýli á Austurlandi er uppurinn eftir að tekið var tilboði í veglagningu yfir Breiðamerkursand. Ég fagna vegbótum hjá nágrönnum okkar í Suðurkjördæmi. En þetta sýnir fáránleika skipulags þar sem starfssvæði Vegagerðarinnar nær frá Austurlandi langt inn í Suðurkjördæmi og framkvæmdir á öðrum endanum éta upp svigrúmið á hinum. Þingmenn Norðausturkjördæmis tóku undir þetta á fundi í liðinni viku. Það er gott, en undirtektir leggja ekki malbik.

Löggæsla á Austurlandi efld með útibúi frá Selfossi?

Samhliða gagnrýni á víðfeðmt starfssvæði Vegagerðarinnar kemur tillaga um þrjú lögreglusvæði og að embættið á Austurlandi verði í reynd útibú frá Selfossi.

Það á að heita efling.

Við höfum lengi barist fyrir fleiri lögreglumönnum, betri búnaði og öflugra landamæraeftirliti. Hér er umfangsmikil hafnarstarfsemi, innflutningur og útflutningur. Náttúruvá hefur líka sýnt mikilvægi staðbundinnar þekkingar og öflugra almannavarna.

Hvernig leysir stjórnun í sjö til átta klukkustunda akstursfjarlægð þessar þarfir? 

Færri ferðir þar sem valkostirnir eru fæstir

Verjast þurfti niðurskurði til að tryggja áframhaldandi ferjusiglingar til Mjóafjarðar. Íbúar eiga ekki að þurfa að berjast reglulega fyrir slíkri grunnþjónustu. Flugferðum um Þórshöfn fækkar vegna niðurskurðar, með áhrifum á Vopnafjörð og nágrenni. Almenningssamgöngur á landsbyggðinni eru undir þrýstingi á meðan aukið fjármagn fer til þeirra á höfuðborgarsvæðinu.

Góðar almenningssamgöngur þar eru nauðsynlegar. En stjórnvöld verða að horfa víðar. Þar sem ferðir eru fáar getur fækkun um eina ráðið úrslitum um hvort þjónustan nýtist.

Viljayfirlýsingin bíður eftir vilja

Vorið 2022 var undirrituð viljayfirlýsing um viðbyggingu við verknámshús Verkmenntaskóla Austurlands. Rúmum fjórum árum síðar er forathugunin, forsenda framkvæmdanna, ekki hafin. Jafnvel hefur reynst erfitt að fá fund með ráðuneytunum. Skólinn þarf húsnæði, atvinnulífið fagmenntað fólk og ungt fólk námstækifæri í heimabyggð. Viljayfirlýsingin er til. Það vantar að viljinn mæti til vinnu.

Sama bið blasir við í öldrunarþjónustu. Það þarf tuttugu ný hjúkrunarrými við Hulduhlíð og viðunandi lausn fyrir Neskaupstað. Fjárfestar eru tilbúnir til uppbyggingar.

Öryggið bíður líka

Í minnisblaði okkar til þingmanna eru fleiri brýn verkefni. Ljúka þarf hringtengingu fjarskipta, eyða sambandslausum köflum á samgönguleiðum, tryggja ofanflóðavarnir og verja raforkuinnviði. Fjármögnun sjúkraflutninga þarf að endurspegla umfang þjónustunnar og sjúkraflugvöllur þarf viðhald.

Þegar skólarúta fer út af þar sem hvorki er farsíma- né TETRA-samband má ekki láta nægja að fagna því að ekki fór verr. Öryggi fólks getur ekki verið háð heppni.

Færri raddir ofan á minni þjónustu

Ofan í þetta kemur tillaga um að fækka kjörnum fulltrúum landsbyggðarinnar á Alþingi.

Þjónustan fjarlægist, stjórnun færist burt, samgöngur skerðast og svörin láta á sér standa. Þá á einnig að veikja rödd samfélaganna sem þurfa stöðugt að minna á sig.

Svo verður kannski spurt hvers vegna landsbyggðin sé alltaf að kvarta.

Því lengra sem ákvarðanir færast frá þeim sem bera afleiðingarnar, þeim mun mikilvægara er að þeir eigi sterka málsvara.

Sísýfos hafði þó aðeins einn stein

Grunnþjónusta smærri samfélaga á ekki að vera sjálfgefinn upphafspunktur niðurskurðar í ríkisrekstri. Að senda sveitarfélögum reikninginn er enginn sparnaður fyrir fólkið sem greiðir til beggja.

Austurland skapar verðmæti sem þjóðarbúið byggir á. Þau verða ekki til án öruggra samgangna, menntunar, heilbrigðisþjónustu og löggæslu.

Sísýfos hafði ekkert val um hlutskipti sitt. Hann hafði þó aðeins einn stein. Sveitarstjórnarfólk ýtir mörgum í einu og fær sífellt fleiri í fangið. Við sættum okkur ekki við endalausa varnarbaráttu. Ríkisstjórnin verður að hætta að senda steinana niður brekkuna og hjálpa til við að koma þeim upp.

Ragnar Sigurðsson
Formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar og Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.